Endurskoðandi framtíðarinnar

Company: Deloitte

Role summary

Endurskoðandi framtíðarinnar is a role at Deloitte in Kopavogur, Iceland (on-site). Posted 2026-08-19. Experience level: 0-2. No degree required.

Job title
Endurskoðandi framtíðarinnar
Company
Deloitte
Location
Kopavogur, Iceland
Work arrangement
on-site
Category
Software Engineering
Experience level
0-2
Degree required
No
Date posted
2026-08-19

If you have a sharp eye for detail and enjoy solving complex problems, this is a fantastic way to kickstart your career at a top-tier firm without needing a traditional degree. You will get to work with cutting-edge digital tools and build a strong foundation in modern accounting practices alongside a supportive, growth-focused team.

Job description

Company Description

Deloitte er stærsta ráðgjafar- og endurskoðunarfyrirtæki heims, með um 457.000 starfsmenn í yfir 150 löndum. Hjá Deloitte á Íslandi starfa um 360 starfsmenn, allt sérfræðingar á sínum sviðum, þar á meðal endurskoðun, tækniráðgjöf, fjármálaráðgjöf, áhætturáðgjöf, skatta- og lögfræðiráðgjöf og viðskiptalausnum.

Job Description

Við leitum að öflugum einstakling sem er að stefna á, hefur nýlokið eða er jafnvel að vinna að M.Acc gráðu og langar að takast á við fjölbreytt og krefjandi verkefni í alþjóðlegu starfsumhverfi. Við leitum að einstakling sem hugsar í lausnum, getur unnið sjálfstætt, er drífandi og vill hafa áhrif. Sem endurskoðandi framtíðarinnar munt þú starfa í samheldnu teymi undir handleiðslu löggiltra endurskoðenda og öðlast þannig dýrmæta reynslu á sviði endurskoðunar og reikningsskila.

Helstu verkefni og áherslur:

Endurskoðun og reikningsskil

Gerð ársreikningar

Gerð uppgjöra og skattframtala

Annað tilfallandi

Qualifications

Hæfniskröfur:

Áhugi á endurskoðun og reikningsskilum

Góð íslensku- og enskukunnáttu í ræðu og riti

Greiningarhæfni og góð þekkingu á Excel

Reynsla af bókhaldsvinnu eða öðru sem nýtist í starfi er kostur

Ert að ljúka eða hefur lokið B.Sc. menntun sem tengist viðskiptafræði, hagfræði eða fjármálum með góðum árangri

Stefnir á, ert að vinna að eða hefur jafnvel lokið M.Acc gráðu

Additional Information

Um teymið

Teymið samanstendur af fjölbreyttum hópi starfsmanna; framtíðar og núverandi reynsluboltum á ólíkum aldri og með alls konar áhugamál. Teymið vinnur náið saman og styður hvort annað til að þroskast og þróast í starfi. Svo höfum við auðvitað gaman af því að fagna saman stórum sem smáum áföngum.

Starfsþróun þín

Við trúum því að það sé ávallt rými til að læra en þú munt öðlast dýrmæta reynslu á sviði endurskoðunar og reikningsskila. Þú lærir mikið af þeim fjölbreyttu verkefnum sem þú tekur að þér hjá viðskiptavinum í ólíkum atvinnugeirum, þú fylgist vel með á þínu fagsviði og við að sama skapi styðjum við þinn vöxt með símenntunartækifærum.

Að auki bjóðum við upp á:

Frábært mötuneyti með niðurgreiddum morgunmat og hádegismat

Regluleg frammistöðu samtöl

Samstarfsfélaga „buddy“ sem kemur þér inn í starfið

Styrk til verðandi foreldra

Veglegan líkamsræktarstyrk, virkt starfsmannafélag og gott félagslíf

Sjálfboðastarf til áhrifa – launaður dagur til að sinna sjálfbærniverkefnum

Aðgang að alþjóðlegu efni Deloitte

Við hlökkum til að fá umsóknina þína

Nánari upplýsingar um starfið veitir Heiðar Þór Karlsson, sviðstjóri endurskoðunarsviði, og Ásta Þyri Emilsdóttir á mannauðssviði, . Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf haustið 2026. Tekið er á móti umsóknum í gegnum heimasíðu Deloitte, www.deloitte.is , til og með 30. ágúst 2026.

Viltu heyra meira um starfið? Kynntu þér sögur sérfræðinga okkar á endurskoðunarsviði - hlekkur á Starf í endurskoðun hjá Deloitte | Deloitte Ísland

Vilt þú hafa áhrif? Hjá Deloitte skiptir þitt framlag máli því saman, sem ein heild, vinnum við að því að hafa áhrif á viðskiptavini, samstarfsfélaga og samfélag. Þú færð tækifæri til að taka þátt í fjölbreyttum verkefnum þvert á svið, starfsstöðvar og lönd, auka hæfni þína og færni og hafa góðan stuðning til vaxtar og þróunar í starfi.

Field of interest: Audit & Assurance

Level of hire: Graduate hire

Apply for Endurskoðandi framtíðarinnar at Deloitte

More jobs at Deloitte